ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.7° 4m/s SSW

Ræktaði marijúana á hraðbraut

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:40 › 18. september 2009
Maðurinn kom plöntunum fyrir á svæði sem aðskilur akreinar hraðbrautarinnar.

Maðurinn kom plöntunum fyrir á svæði sem aðskilur akreinar hraðbrautarinnar. Mynd Photos

Grískur karlmaður hefur verið handtekinn fyrir að gerast svo djarfur að rækta marijúna á miðri hraðbraut, á milli Aþenu og Þessalóníku, í Grikklandi. Hraðbrautin sem um ræðir er sú fjölfarnasta í Grikklandi og því þykir málið allt hið undarlegasta.

Þó felustaðurinn hafi eftir á að hyggja ekki þótt góður voru plönturnar búnar að vera í pottum – á svæði sem aðskilur akreinarnar – í töluverðan tíma. Þegar lögreglan gerði plönturnar upptækar kom í ljós að þær hæstu voru 180 sentímetrar á hæð en alls voru 42 plöntur gerðar upptækar.

Grikkinn uppátækjasami var svo handtekinn þegar hann hugðist sækja hluta þeirra.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.