Ólafur sagðist ánægður með það sem gerst hefur á blaðinu síðan hann tók við því. Mynd Róbert Reynisson
Ólafur Stephensen, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, segist ganga stoltur frá störfum sínum á Morgunblaðinu. Ólafur ræddi stuttlega við fjölmiðla eftir að fundi hans með starfsmönnum Morgunblaðsins lauk um fimm leytið í dag. Sagði Ólafur að það væri réttara að skipta út ritstjóra en „hafa áhrif á ritstjórnarvaldið.“
Eins og DV.is greindi frá fyrst í dag er Ólafur hættur sem ritstjóri Morgunblaðsins. Svo virðist sem starfslokin hafi borið brátt að þar sem ekki hefur verið tilkynnt um arftataka hans. Þegar Ólafur var spurður hvort ekki væri sárt að hætta störfum hjá blaðinu sagði Ólafur það ekki vera. Hann væri búinn að eiga góðan tíma með frábæru fagfólki og sagðist hann ánægður með það sem gerst hefur á blaðinu frá því hann tók við. Hann sagði ástæðuna vera mismunandi sýn hans og eigenda blaðsins um ritstjórnarstefnu og rekstur.
Eftir að hafa rætt stuttlega við blaðamenn fór Ólafur aftur inn í húsnæði Morgunblaðsins þar sem boðið var upp á bjór og aðrar léttar veitingar.
Starfsfólki Morgunblaðsins er mjög brugðið eftir að tilkynnt var um starfslok Ólafs og sagði Kolbrún Bergþórsdóttir, blaðamaður Morgunblaðsins, í samtali við DV.is í dag að það væri dómgreindarleysi að láta Ólaf fara. „Þegar eigendur reka mesta fagmanninn á blaðinu þá hefur maður óneitanlega áhyggjur af framtíð blaðsins. Ólafur Stephensen var með Morgunblaðið á afar góðri braut og hann er sá blaðamaður sem mér hefur þótt einna best að vinna með,“ sagði Kolbrún.
Miklar getgátur eru um hver verði næsti ritstjóri blaðsins, óstaðfestar heimildir herma að Davíð Oddsson, Páll Magnússon og Ólafur Teitur Guðnason hafi verið orðaðir við ritstjórastólinn. Þessi orðrómur gengur meðal annars meðal starfsmanna Morgunblaðsins.




Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Reiknikúnstir lífeyrissjóðanna „óþolandi og ólíðandi“
EasyJet mun fljúga allt árið
Meintar deilur látinna feðra: Vildi losna við dómara
Útvarpsstjóri: Raunhæfur möguleiki að sniðganga Eurovision
Vítamín í vörina: Tóbaksgjald hindrar innflutning