ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.9° 4m/s E

Norskur fjárfestir kaupir í MP Banka

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:19 › 18. september 2009
Endre Røsjø mun eignast hlut í bankanum að loknum fyrirhuguðum hlutahafafundi í næsta mánuði.

Endre Røsjø mun eignast hlut í bankanum að loknum fyrirhuguðum hlutahafafundi í næsta mánuði. Mynd Heiða Helgadóttir

Norski fjárfestirinn Endre Røsjø og MP Banki hf. hafa náð samkomulagi um að Røsjø eignist hlut í bankanum að loknum fyrirhuguðum hluthafafundi í næsta mánuði og verði þar með virkur hluthafi við framtíðarþróun bankans. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum.

Þar kemur fram að Røsjø eigi að baki langan feril í banka- og fjárfestingastarfsemi, allt frá árinu 1970. Ekki kemur fram í tilkynningunni hversu stóran hlut Røsjø mun kaupa. Í tilkynningunni kemur fram að á meðalnúverandi fjárfestinga hans er norska fjárfestingafélagið Centennial og verðbréfafyrirtækið Pinemont Securities í London sem er aðili að kauphöllinni þar. Á meðal fyrri fjárfestinga Røsjø er Pinemont Bank í Texas í Bandaríkjunum sem hann seldi fyrir nokkrum árum.

Gunnar Karl Guðmundsson, forstjóri MP Banka, er segist mjög ánægður með fjárfestingu Røsjø í tilkynningunni. „MP Banki er vel í stakk búinn til að styrkja stöðu sína á markaðnum, en bankarekstur er krefjandi verkefni við núverandi aðstæður á Íslandi. Það er mjög jákvætt fyrir okkur að jafnreyndur fjármálamaður og Røsjø gangi til liðs við bankann. Honum líst mjög vel á rekstrarhorfur bankans og aðkoma hans eykur möguleika bankans til að nýta tækifærin og takast á við ný verkefni.“

Þá segist Røsjø einnig telja að fjárfesting sín í íslenskum banka feli í sér mikil tækifæri og vonast til að koma að fleiri verkefnum á Íslandi á næstunni, m.a. í gegnum norrænan fjárfestingasjóð. „MP Banki var eins og ég sjálfur mjög áhættufælinn á árunum 2007-8 og lagði áherslu á ríkisskuldabréf. Hrunið var mikil þolraun fyrir fjármálafyrirtæki eins og MP Banka og forysta hans og starfsfólk hafa sannað að þau eru þrautseig og traust. Mér líst vel á að þróa bankann áfram með þeim. Ég heimsótti Ísland í vor að frumkvæði fyrrum Seðlabankastjóra, Svein Harald Øygard, til að kanna hvort ég og aðrir norrænir fjárfestar gætum fjárfest hér og með því örvað efnahagslífið. Ég væri mjög ánægður ef þessi fyrsta fjárfesting mín gæti eflt traust á íslenska bankakerfinu.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.