ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 7m/s WSW

Kolbrún: Dómgreindarleysi að láta Ólaf fara

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:55 › 18. september 2009

„Ég efast stórlega um dómgreind þeirra sem tóku þessa ákvörðun,“ segir Kolbrún Bergþórsdóttir blaðamaður á Morgunblaðinu. Hún undrast mjög brottrekstur Ólafs Stephensen sem ritstjóra blaðsins.

„Þegar eigendur reka mesta fagmanninn á blaðinu þá hefur maður óneitanlega áhyggjur af framtíð blaðsins. Ólafur Stephensen var með Morgunblaðið á afar góðri braut og hann er sá blaðamaður sem mér hefur þótt einna best að vinna með,“ segir Kolbrún.

Starfsmönnum Morgunblaðsins var fyrr í dag tilkynnt um ráðahaginn og var mörgum mjög brugðið. DV.is greindi frá þessu fyrst fjölmiðla.

Í tilkynningu frá Árvakri, rekstraraðila Morgunblaðsins, segir ástæðuna vera mismunandi áherslur varðandi ritstjórn og rekstur Morgunblaðsins sem meðal annars hafi komið fram við stefnumótun og endurskipulagningu á starfsemi Árvakurs. Nýr ritstjóri verði ráðinn svo fljótt sem kostur er.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.