ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.9° 4m/s E

Jóhanna gagnrýnir stjórnarandstöðuna

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
18:22 › 18. september 2009
Jóhanna var ekki hress með viðbrögð stjórnarandstöðunnar.

Jóhanna var ekki hress með viðbrögð stjórnarandstöðunnar. Mynd DV

„Ef við föllumst á þær eins og þær liggja fyrir núna verðum við að fara með málið aftur fyrir þingið,“ segir Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra. Hún segir að ef fallist verði á tillögur Breta og Hollendinga í Icesave-málinu fari málið fyrir Alþingi að nýju. Þá undrast hún viðbrögð stjórnarandstöðunnar í málinu og segir að þau kalli á endurskoðun í samskiptum ríkisstjórnarinnar við stjórnaandstöðuna.

Þetta kom fram í kvöldfréttum RÚV.

Jóhanna gagnrýndi viðbrögð stjórnarandstöðunnar í gær við svörum Breta og Hollendinga í Icesave-málinu og sagði að með þeim hafi trúnaður verið rofinn. Sagði Jóhanna að stjórnarandstaðan hafi lýst yfir andstöðu við málið í gær, áður en tækifæri gafst til að ræða tillögurnar.

Þá sagði Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra að unnið væri að því þessar klukkustundirnar að svari til Breta og Hollendinga. Sagði hann við RÚV að það verði líklega sent þangað í kvöld eða um helgina.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.