ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 4.0° 7m/s WSW

Jaycee saknar gæludýranna sinna

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
12:29 › 18. september 2009
Jaycee Lee Dugard saknar gæludýranna.

Jaycee Lee Dugard saknar gæludýranna.

Jaycee Lee Dugard, sem haldið var fanginni í 18 ár af Phillip og Nancy Garrido í Antioch í Bandríkjunum, vill að gæludýrunum sem hún hélt í prísund sinni verði skilað.

Dýraeftirlitið í Contra Costa-sýslu eru nú með fimm ketti, tvo hunda, þrjá fugla, dúfu og mús sem Jaycee hélt í bakgarðsskúrnum sem hún bjó í fyrir aftan heimili Garrido-hjónanna.

Jaycee hefur komið þeim skilaboðum áleiðis að hún vilji fá dýrin aftur en óvíst er hvort hægt verði að verða við þeirri bón.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.