ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.7° 4m/s SSW

Í fótspor Helga Hóseassonar

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
17:46 › 18. september 2009
Siggi V. Rúmlega 250 manns hafa skráð sig í hópinn.

Siggi V. Rúmlega 250 manns hafa skráð sig í hópinn. Mynd Róbert Reynisson

„Þetta er bara mín leið til þess að heiðra karlinn,“ segir Sigurður Valdimar Steinþórsson sem hyggst feta í fótspor mótmælanda Íslands Helga Hóseassonar. Sigurður hefur stofnað grúppu á Facebook með yfirskriftinni „Sigurður V í stað Helga Hóse“. „Ef nógu margir styðja mig í þessu þá ætla ég að standa á horni Langholtsvegar og Holtavegar þar sem hann var alltaf í þrjá daga.“

Sigurður segir að 2500 manns þurfi að skrá sig svo af uppátækinu verði en ef stuðningurinn verði nægilega mikill verði hann jafnvel lengur en í þrjá daga. „Busi, Dóri Davíð. Eins og hjá karlinum,“ segir Sigurður um hvað muni standa á mótmælaskiltinu sem hann muni bera.

Mikið hefur verið rætt um það hvort reisa eigi styttu af Helga á horninu fræga og hafa fjölmargir landsmenn sýnt því stuðning. „Mér finnst að það ætti klárlega að gera styttu af honum. Karlinn var bara svalur.“


Facebook-hópurinn



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.