ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 5m/s SSW

Hvattar til að svelta sig

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:11 › 18. september 2009
Aukning hefur orðið í fjölda vefsíðna sem hvetja ungar stúlkur til að léttast.

Aukning hefur orðið í fjölda vefsíðna sem hvetja ungar stúlkur til að léttast. Mynd Photos

  • Lindsay Lohan er notuð sem hvatning.

    Lindsay Lohan er notuð sem hvatning. Mynd Photos

Mikil aukning hefur verið í fjölda vefsíðna á netinu, svokölluðum pro-anorexíusíðum. þar sem ungar stúlkur eru beinlínis hvattar til að svelta sig. Sálfræðingar og fleiri sérfræðingar eru áhyggjufullir yfir ástandinu enda hefur fjöldi dauðsfalla vegna anorexíu og annarra átröskunarsjúkdóma fjölgað á undanförnum árum.

Á vefsíðunum deila ungar stúlkur meðal annars upplýsingum um hvernig megi léttast hratt á mjög stuttum tíma. Þá birta þær myndir af sér þar sem þær sýna þyngdartapið. Myndir af frægum fyrirsætum, leikkonum og söngkonum eru notaðar sem hvatning og nægir þar að nefna leikkonuna Lindsay Lohan og söngkonuna Sheryl Cole.

Í samtali við Sky News, lýsir hin tvítugu Emma Columbine, hvernig hún náði að léttast gríðarlega með aðstoða slíkra vefsíðna. „Þegar ég var mjög örvæntingafull fór ég á þessar síður og leitaði að upplýsingum um nýja megrunarkúra og velti fyrir mér hvað ég gæti gert til að léttast meira. Ég skoðaði myndir af grönnum stórstjörnum og ég vildi bara verða eins og þær. Hvað sem það kostaði.“

Susan Ringwood sem starfar hjá bresku forvarnarsamtökum BEAT segir að aðgerða sé þörf og ráðamenn og foreldrar barna þurfi að vera meðvitaðir um það sem leynist á netinu. Engin lög eru hinsvegar til í Bretlandi sem banna slíkar vefsíður.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.