ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.0° 2m/s E

Guðlaugur Þór fagnar Jóhönnu

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:02 › 18. september 2009
Guðlaugur telur að Jóhanna hafi lært af reynslunni og boði nú breytt vinnubrögð.

Guðlaugur telur að Jóhanna hafi lært af reynslunni og boði nú breytt vinnubrögð. Mynd DV

Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, fagnar yfirlýsingu Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. Eftir ríkisstjórnarfund í dag undraðist Jóhanna viðbrögð stjórnarandstöðunnar í Icesave-málinu og sagði hún að þau kalli á endurskoðun á samskiptum ríkisstjórnarinnar við stjórnarandstöðuna.

„Þessi yfirlýsing ráðherrans er fagnaðarefni fram til þessa hefur ríkisstjórnin ekki haft samráð við stjórnarandstöðuna og forystumenn stjórnarandstöðunnar iðulega fengið fréttir í gegnum fjölmiðla áður en einstök málefni hafa verið kynnt þeim,“ segir Guðlaugur Þór á bloggsíðu sinni.

Hann segir skýrt dæmi það hafa komið fram í gær þegar stjórnarandstaðan var beðin um trúnað „á einhverju sem þegar var komið í fjölmiðla.“ Slík vinnubrögð séu í besta falli ólíðandi. „Ég lít svo á að forsætisráðherra hafi lært af reynslunni og boði nú breytt vinnubrögð,“ segir Guðlaugur.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.