ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 5m/s SSW

Davíð aftur orðaður við Moggann

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
19:28 › 18. september 2009
Davíð Oddsson er orðaður við ritstjórastól Morgunblaðsins.

Davíð Oddsson er orðaður við ritstjórastól Morgunblaðsins. Mynd DV

Davíð Oddsson, fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, er nefndur sem hugsanlegur arftaki Ólafs Stephensen, sem lét af störfum sem ritstjóri Morgunblaðsins í dag. Óskar Magnússon, eigandi Morgunblaðsins, sagði einmitt í samtali við DV í febrúar á þessu ári, þegar tilkynnt var um kaupin, að Davíð „yrði örugglega góður ritstjóri.“

Fyrir áramótin seinustu var fyrst rætt um það í fullri alvöru að Davíð tæki við ritstjórn á Morgunblaðinu eins og DV greindi frá á þeim tíma. Sú umræða kom upp í tengslum við þá undirliggjandi stjórnarkreppu sem var í samstarfi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks, meðal annars vegna setu Davíð á stóli seðlabankastjóra í óþökk Samfylkingar. Æðstu menn Sjálfstæðisflokksins fengust ekki til að reka Davíð en báðu um nokkurra vikna frest til þess að fá hann út með góðu. Í þeim samræðum kom fram að Davíð myndi hugsanlega fást til þess að fara sjálfviljugur úr seðlabankanum á Morgunblaðið. Ríkisstjórnin sprakk áður en til þessa kom.

Davíð er hinsvegar ekki sá eini sem nefndur hefur verið sem arftaki því einnig hafa þeir Páll Magnússon útvarpsstjóri og Ólafur Teitur Guðnason verið nefndir í því samhengi, auk Ásdísar Höllu Bragadóttur, sem situr í útgáfustjórn blaðsins.

Það sem þykir renna stoðum undir þá kenningu að Davíð taki við Morgunblaðinu eru tengsl eigenda blaðsins inn í Sjálfstæðisflokkinn. DV greindi frá því í febrúar að Gísli Baldur Garðarsson, einn stærsti eigandi blaðsins, sé nátengdur inn í kjarna flokksins. Hann var meðal annars skipaður formaður landskjörstjórnar í forsætisráðherratíð Giers H. Haarde.

Gísli Baldur er jafnframt eigandi og stjórnarformaður Olís. Hann hefur í áraraðir verið lögmaður Þorsteins Más Baldvinssonar og Samherja, en Þorsteinn er forstjóri Samherja og einn af hluthöfum Árvakurs.

Þá kom fram í frétt DV fyrr á árinu að Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson lögmaður og Kjartan Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, hefðu staðið á bak við kaup Þórsmerkur á Árvakri. Kom þar fram að Gunnlaugur Sævar hafi lengi verið einn helsti ráðgjafi og fjárhaldsmaður Guðbjargar Matthíasdóttur sem er einn af stóru eigendum félagsins. Þá þarf ekki að fjölyrða um vinskap Kjartans Gunnarssonar og Davíðs Oddssonar, sem nú er talinn líklegastur til að setjast í stól ritstjóra Morgunblaðsins.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.