ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.9° 4m/s E

Borgarahreyfingin vill Þráin heim

Jóhann Hauksson johannh@dv.is
15:15 › 18. september 2009
Þráinn Bertelsson segir að liðsmenn Borgarahreyfingarinnar hafi haft samband við sig og viljað kanna samstarf við hann sem þingmann.

Þráinn Bertelsson segir að liðsmenn Borgarahreyfingarinnar hafi haft samband við sig og viljað kanna samstarf við hann sem þingmann.

„Það er merkilegt að þingmennirnir þrír skuli þurfa að stofna nýja hreyfingu til þess að framfylgja upprunalegri stefnuskrá Borgarahreyfingarinnar. Þeim var gersamlega ofviða að framfylgja henni meðan þau voru innan hennar,“ segir Þráinn Bertelsson fyrrum þingmaður Borgarahreyfingarinnar en nú óháður.

Þingmenn Borgarahreyfingarinnar, Þór Saari, Birgitta Jónsdóttir og Margrét Tryggvadóttir, tilkynntu í dag um stofnun Hreyfingarinnar ásamt tveimur varaþingmönnum sínum. Markmiðið með stofnun Hreyfingarinnar er að framfylgja upprunalegri stefnuskrá Borgarahreyfingarinnar eins og segir í yfirlýsingu þeirra.

Þráinn segir að liðsmenn Borgarahreyfingarinnar hafi haft samband við sig og viljað kanna samstarf við hann sem þingmann. „Þegar ég þurfti á Borgarahreyfingunni að halda var hún ekki til staðar. Nú þegar hún virðist þurfa á mér að halda er ekki víst að ég sé til staðar. Brennt barn forðast eldinn. En mér líst vel á þá sem tekið hafa við forystu í Borgarahreyfingunni og ég óska þeim alls góðs,“ segir Þráinn.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.