„Ég sé á vefsíðum, að mitt nafn er nefnt, þegar menn geta sér til um nýjan ritstjóra Morgunblaðsins. Þær vangaveltur eiga ekki við neitt að styðjast,“ segir Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra og fyrrverandi aðstoðarritstjóri Morgunblaðsins. Björn gerir ritstjóraskiptin að umtalsefni á bloggsíðu sinni og segir að Ólafur Stephensen hafi gengið of langt í baráttunni fyrir ESB-aðild.
„Ég hef ekki legið á þeirri skoðun minni, að mér þætti blaðið ganga of langt í baráttunni fyrir ESB-aðild Íslands undir ritstjórn Ólafs,“ segir Björn. Hann segir auk þess að Ólafur sé „einn ákafasti ESB-aðildarsinni landsins.“ Björn var aðstoðarritstjóri Morgunblaðsins á árunum 1984 til 1991.
Björn segir að þegar Ólafur tók við ritstjórastólnum hafi hann búist við að líklega yrði breytingin í stefnu ritstjóra mest í Evrópumálum. „Það reyndist rétt, því að í þeim efnum varð kúvending hjá Morgunblaðinu við ritstjóraskiptin. Ólafur Þ. Stephensen er einn ákafasti ESB-aðildarsinni landins og var fyrsti formaður Evrópusamtakanna (ESB), sem vinna að aðild Íslands að ESB.“
Björn bætir svo við að Ólafur hafi með því fetað í fótspor Aftenposten í Noregi, sem hann segir að sé borgaralegt ESB-aðildarsinnað blað. Það hafi þó ekki haft erindi sem erfiði með boðskap sinn. „Eftir að alþingi samþykkti, að gengið skyldi til ESB-aðildarviðræðna, og ESB-fjölmiðlarnir náðu því takmarki sínu, hefur andúð almennings á aðild aukist.“




Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

Reiknikúnstir lífeyrissjóðanna „óþolandi og ólíðandi“
EasyJet mun fljúga allt árið
Meintar deilur látinna feðra: Vildi losna við dómara
Útvarpsstjóri: Raunhæfur möguleiki að sniðganga Eurovision
Vítamín í vörina: Tóbaksgjald hindrar innflutning