„Komdu bara á blaðamannafundinn, þá kemstu að því,“ sagði Þór Saari við blaðamann DV.is er hann var spurður hvort þingmenn Borgarahreyfingarinnar ætla að segja sig úr hreyfingunni. Þingmenn hreyfingarinnar hafa boðað til blaðamannafundar á morgun klukkan 14. Þeir hafa síðastliðna daga íhugað hvort og þá hvernig þeir sjái sér fært að starfa með hreyfingunni við þær aðstæður sem hafa skapast innan hennar.
Í yfirlýsingunni þingmanna Borgarahreyfingarinnar kemur fram að á landsfundi hreyfingarinnar hafi verið samþykkt lög sem gangi í berhögg við uppruna, tilgang og stefnu hreyfingarinnar. Segja þau að hreyfingin hafi sprottið upp sem lýðræðisafl til höfuðs þeim hefðbundnu stjórnmálaflokkum sem fyrir voru.
Hún hafi hinsvegar tapað sjónum á ábyrgð sinni við kjósendur landsins.
Með þessum nýju lögum er staðfest ótímabær uppgjöf að mati þingmannanna þriggja gagnvart þeim nýju lýðræðislegu starfsháttum og þverpólitíska starfi sem lagt var upp með.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Harmleikur í Hafnarfirði: Búið að yfirheyra hinn grunaða
Snorri í Betel: „Ég met þetta þannig að Biblían sé að segja satt“
Segir Bjarna Ben leika trúð í Vafningsmálinu
Foreldrar sagðir æfir vegna skrifa Snorra í Betel
Klapparstígur mun líta út eins og Skólavörðustígur