„Þetta er bara vitleysa,“ segir Þór Saari, þingmaður Borgarahreyfingarinnar um hugmyndir Breta og Hollendinga um fyrirvaranna við Icesave ábyrgðirnar. Í kvöldfréttum RÚV kom fram að litlar athugasemdir hefðu verið gerðar af Hollendingum og Bretum við fyrirvara Alþingis að frátöldum fyrirvaranum um að semja verði upp á nýtt verði Icesave skuldir ekki greiddar að fullu árið 2024.
Í fyrirvara Alþingis er gert ráð fyrir að verði ekki skuldirnar greiddar að fullu þá falli ríkisábyrgð niður og semja verði upp á nýtt. RÚV heldur því fram að hvorki Hollendingar né Bretar fallist á þennan fyrirvara.
„Þetta sem þeir leggja til er ekki ásættanlegt fyrir Borgarahreyfingunna. Þetta er bara vitleysa að mínu mati og ekki aðgengilegt,“ segir Þór sem sagðist að öðru leyti ekki vilja tjá sig um hugmyndir Breta og Hollendinga því hann væri bundinn trúnaði.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Björt framtíð með framsóknarblæ
Útvarpsstjóri segir ráðamenn ekki vilja að hann lesi fréttir
Gat ekki hróflað við Davíð
Nýr meirihluti myndaður í Kópavogi
Jón Gnarr setur Vetrarhátíð