Ólafur Ragnar nýtur aðeins mikils trausts hjá 22,8% svarenda. Um 48% bera lítið traust til forsetans.
47,7 prósent landsmanna bera lítið traust til Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, samkvæmt nýrri könnun MMR. Yfir 50 prósent aðspurðra í könnuninni bera lítið traust til Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, og Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins. Steingrímur J. Sigfússon stendur styrkum fótum hvað traust áhrærir en traust til Jóhönnu Sigurðardóttur dalar heldur á heildina litið.
Flestir, eða 37,7%, sögðust bera mikið traust til Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra. Samkvæmt niðurstöðu MMR vekur athygli að fjöldi þeirra sem bera mikið traust til Steingríms hefur vart mælst meiri en nú.
Næst flestir, eða 36,0% sögðust bera mikið traust til Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra. Þetta er nokkur breyting frá í febrúar síðast liðnum þegar 58,5% kváðust bera mikið traust til Jóhönnu. Um 40% svarenda segjast bera lítið traust til þeirra Steingríms og Jóhönnu. Um leið hafa orðið þau tímamót í mælingum MMR á trausti til helstu leiðtoga stjórnmálanna, að forsetanum meðtöldum, að fleiri segjast bera lítið traust til þeirra allra en segjast bera mikið traust til þeirra.
Ólafur Ragnar Grímsson nýtur mikils trausts hjá 22,9% svarenda, en tæp 47,7% segjast bera lítið traust til forsetans. 19,4% sögðust bera mikið traust til Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns
Framsóknarflokksins og 18,3% sögðust bera mikið traust til Bjarna Benediktssonar, formanns
Sjálfstæðisflokksins.
Á móti voru yfir 50% sem sögðust bera lítið traust til þeirra Sigmundar og Bjarna. Birgitta Jónsdóttir, formaður þingflokks Borgarahreyfingarinnar var sögð njóta mikils trausts af 7,4% svarenda en
63,0% kváðust bera lítið traust til hennar.
Sé litið til stuðnings við stjórnmálaflokka, má sjá að Steingrímur J. Sigfússon nýtur trausts meðal
93,2% þeirra sem segjast myndu kjósa Vinstri græna væri gengið til kosninga nú, Jóhanna Sigurðardóttir nýtur trausts meðal 82,9% stuðningsmanna Samfylkingarinnar, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson nýtur trausts meðal 67,1% Framsóknarmanna og Bjarni Benediktsson nýtur trausts meðal 60,1% sjálfstæðismanna.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
Lögreglumennirnir ráðnir á fölskum forsendum
