ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 10m/s ESE

Segir alla söguna hjá Opruh

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
19:33 › 13. september 2009
Jaycee Dugard var rænt þegar hún var ellefu ára gömul. Hún ætlar að segja sögu sína hjá Opruh Winfrey.

Jaycee Dugard var rænt þegar hún var ellefu ára gömul. Hún ætlar að segja sögu sína hjá Opruh Winfrey.

Jaycee Lee Dugard, konan sem numin var á brott barnung af barnaníðingnum Phillip Garrido, ætlar að deila reynslu sinni í þætti Opruh Winfrey. Dugard kom í leitirnir í síðasta mánuði en hún var ellefu ára þegar Garrido rændi henni. Dugard hefur forðast sviðsljósið eftir að málið kom upp en hún er 29 ára í dag.

Talið er að Dugard fái eina milljón bandaríkjadala, eða 125 milljónir króna fyrir viðtalið. Oprah hefur áður fengið hjónin Kate og Gerry McCann til að deila reynslu sinni. Talsmaður fjölskyldu Dugard segist vonast til þess að mál hennar veki McCann-hjónunum von um að Madeleine McCann finnist á lífi.

Ef smellt er á "Jaycee Lee Dugard" hér að neðan má sjá tengdar fréttir.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.