ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.2° 11m/s SSW

Garrido átti nauðgunarfantasíur

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
11:57 › 1. september 2009
Phillip Garrido dreymdi um að nauðga.

Phillip Garrido dreymdi um að nauðga.

Phillip Garrido, sem sakaður er um að hafa rænt Jaycee Lee Dugard og haldið henni fanginni og nauðgað í 18 ára, talaði í gömlum réttarhöldum yfir sér um naðugunarfantasíur sínar. Garrido sat inn í tíu ár af þeim fimmtíu sem hann hlaut fyrir mannrán og nauðgun árið 1976. Fjölmiðlar hafa nú grafið upp gögnin úr þeim réttarhöldum þar sem ýmislegt ógeðfellt kemur í ljós og málið allt tekur enn á sig enn ljótari mynd.

Fram kemur í fjölmiðlum ytra í dag að í bænum Antioch þar sem Garrido bjó ásamt eiginkonu sinni, Jaycee og börnum hennar tveim, sé umtalsverður fjöldi fyrrverandi fanga sem skráðir eru kynferðisbrotamenn. Bærinn er eins konar farfuglaheimili fyrir kynferðisbrotamenn sem sleppt hefur verið.

Í réttarhöldunum yfir Garrido á áttunda áratugnum sagði Garrido að hann gengi um hverfi og gægðist á glugga og að hann ætti sér gríðarlega sterkar nauðgunarfantasíur.

Samkvæmt gögnum úr réttarhöldunum viðurkenndi hann að glápa á litlar stelpur allt niður í sjö ára gamlar og hann hefði oft berað sig fyrir þeim.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.