Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Lögreglumenn lokuðu í dag svæði við heimili barnaníðingsins Philip Garrido, sem rændi Jaycee Lee Dugard og hélt henni fanginni og nauðgaði í 18 ár. Fundu lögreglumenn bein í garðinum við heimili hans í Kaliforníu en ekki liggur fyrir á þessari stundu hvort um bein úr manneskju sé að ræða.
Að sögn lögreglu gæti tekið nokkrar vikur að fá úr því skorið hvort beinið sé úr manneskju eða dýri. Er talið að lögreglan vilji fá úr því skorið hvort Garrido beri ábyrgð á einhverjum þeirra ellefu morða, sem framin voru á vændiskonum á tíunda áratugnum. Málin eru öll óupplýst og fundust lík sumra þeirra nálægt vinnustað Garrido.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu