Þráinn Bertelsson, þingmaður Borgarahreyfingarinnar, segir að samflokksmenn sínir þau Birgitta Jónsdóttir, Margrét Tryggvadóttir og Þór Saari ættu að taka pokann sinn og láta varamenn sína komast að. Þetta sagði Þráinn í Síðdegisútvarpi Rásar 2 í dag.
Þráinn sagði að þingmennirnir hafi ekki fylgt stefnu flokksins eftir að þeir tóku sæti á þingi. Á vef RÚV er haft eftir Herberti Sveinbjörnssyni, formanni Borgarahreyfingarinnar, að innra starf hennar hafi staðið í ljósum logum síðan kosið var um aðildarumsókn að Evrópusambandinu en þrír af fjórum þingmönnum Borgarahreyfingarinnar, fyrrnefndir þrír þingmenn, sem Þráinn vill burt, greiddu atkvæði gegn umsókninni.
Þráinn sagði því ekkert til fyrirstöðu að hreyfingin gæti átt glæsilegan og samstæðan hóð – að því gefnu að þingmennirnir taki pokann sinn og láti varamenn komast að.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna