Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Kona, sem líkist poppstjörnunni Victoriu Beckham og eiginkonu knattspyrnukappans David Beckham, er talin tengjast hvarfinu á Madeleine McCann, sem hvarf frá fjölskyldu sinni í Portúgal árið 2007. Einkaspæjarar McCann-hjónanna leita nú konunnar.
Samkvæmt frétt á vefmiðli breska blaðsins The Guardian sást konan í Barcelona á Spáni nokkrum dögum eftir að Madeleine hvarf í Portúgal. Hún gaf sig á tal við breska ferðalanga, sem síðar höfðu samband við einkaspæjara hjónanna. Ekki liggur fyrir hvað fór á milli konunnar og mannanna en að sögn einkaspæjara, sem vinnur fyrir fjölskylduna, er um sterka vísbendingu að ræða.
Mynd af konunni var birt á blaðamannafundi í Lundúnum í dag.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung