Viðskiptavinir Lufthansa eiga nú þann kost að fá endurgreitt fyrir rigningardagana í sumafríinu. Mynd Photos
Þýska flugfélagið Lufthansa hefur ákveðið að bjóða farþegum sínum nýja tegund af tryggingu. Ef ekki er nægjanlega mikil sól á einhverjum af 36 áfangastöðum flugfélagsins geta farþegar fengið hluta fargjaldsins endurgreiddan.
Þessari nýja tegund af tryggingu er ætlað að blása lífi í ferðaiðnaðinn sem hefur víða orðið illa út úr heimskreppunni. Þeir sem panta sér flug á einhvern af áfangastöðum flugfélagsins geta fengið tuttugu evrur fyrir hvern rigningardag, eða 3.580 krónur. Upphæðin getur þó ekki orðið meiri en 35.680 krónur fyrir hvern farþega.
Farþegar sem vilja nýta sér trygginguna verða að bóka flugfar fyrir átjánda ágúst og ferðin verður að vera farin á tímabilinu frá september fram í lok október. Lufthansa hefur átt erfitt uppdráttar undanfarin misseri en fyrir skemmstu tilkynnti félagið um verulegt rekstrartap á öðrum ársfjórðungi þessa árs.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu