Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
23 ára gömul kona frá Philadelphiu í Bandaríkjunum lést eftir að hún fékk í sig trjágrein í stórum almenningsgarði skammt frá borginni. Svo virðist sem greinin hafi brotnað úr trénu um leið og konan átti leið hjá en hún var á skokki í garðinum og með tónlist í eyrunum.
Þótt ótrúlegt megi virðast er þetta ekki í eina skiptið síðustu daga sem viðlíka slys verður. Skokkari frá New York liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi eftir að hann fékk í sig stóra trjágrein.
Trjágreinin sem varð konunni í Philadelphia að bana var tíu metra löng og er talið að hún hafi fallið úr fimmtán metra hæð. Talið er að konan hafi ekki heyrt greinina brotna þar sem hún var með tónlist í eyrunum. Fox News greinir frá þessu.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung