Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Þær voru heldur kaldar kveðjurnar sem komu fram í bréfi sem Nicholas Sarkozy, forseti Frakklands, fékk sent á dögunum. Í bréfinu var hótað að myrða forestann en auk þess var byssukúla úr Magnum skammbyssu, sambærilegri og Dirty Harry bar í samnefndnum kvikmyndum.
„Sæll aftur. Við höfum ekki gleymt þér. Kóngurinn og ættbálkur hans munu verða þurrkaðir af yfirborði jarðar,“ stóð meðal annars í bréfinu. Þetta er í annað skiptið á fimm mánuðum sem Sarkozy fær senda slíka morðhótun.
Hótanirnar eru teknar alvarlega að sögn franskra stjórnvalda. Þess má þó geta að vinsældir Sarkozy jukust um tólf prósent eftir að hann var fluttur á sjúkrahús vegna veikinda í síðasta mánuði.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung