Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Sextán ára unglingspiltur frá Malasíu fékk vægðarlausa refsingu frá kennara sínum eftir að sígaretta fannst í geymsluskáp piltsins í skólanum. Kennarinn neyddi hann til að reykja 42 sígarettur á tveimur klukkustundum.
Pilturinn, sem heitir Mohd Alif Arifin, gat ekki borðað í fimm daga eftir refsinguna að sögn frænku hans, sem hefur forræði yfir honum eftir lát foreldra hans. Hún komst að hinu rétta í málinu eftir fimm daga en þá tók hún eftir því að varir hans voru stokkbólgnar.
Málið var kært til lögreglu og hafa skólayfirvöld beðist afsökunar á framferði kennarans. Nú er boltinn hjá skólayfirvöldum sem taka munu ákvörðun um framtíð kennarans.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu