ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Gekk berserksgang og réðist á starfsmann

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
19:21 › 6. ágúst 2009

Karlmaður gekk berserksgang í húsnæði Innheimtustofnunar sveitarfélaga í Lágmúla í dag. Réðist maðurinn á starfsmann stofnunarinnar og þurfti starfsmaðurinn að fara á slysadeild vegna áverka sem hann hlaut. Þetta kom fram í kvöldfréttum Sjónvarpsins.

Maðurinn leitaði til stofnunarinnar vegna ótilgreindrar upphæðar, sem tekin var af vaxtabótum sem maðurinn átti að fá. Vegna skuldar var upphæðin dregin af bótunum. Lögmaður stofnunarinnar reyndi að útskýra málið fyrir manninum en það fór ekki betur en svo en maðurinn réðist á hann.

Maðurinn tilkynnti starfsfólki að næst væri förinni heitið í Fjársýslu ríkisins og var lögregla kölluð þangað. Reiðin virðist hinsvegar hafa runnið af manninum og skilaði hann sér aldrei þangað. Lögreglan leitar nú mannsins.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.