ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 5m/s S

Frá Guantanamo í golfið

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:08 › 6. ágúst 2009
Mennirnir, sem allir voru fangar í Guantamo, hafa verið ráðnir til starfa á golfvelli á eyjunni Bermúda.

Mennirnir, sem allir voru fangar í Guantamo, hafa verið ráðnir til starfa á golfvelli á eyjunni Bermúda. Mydir AFP

Fjórir fangar, sem allir dvöldu í Guantanamo-fangabúðum Bandaríkjamanna á Kúbu, hafa allir fengið starf á golfvelli á eyjunni Bermúda í Atlantshafi. Bermúda er breskt yfirráðasvæði í Atlantshafi og hefur ráðningin valdið nokkrum titringi.

Samkvæmt lögum á Bermúda má aðeins ráða útlendinga í starf ef enginn heimamaður fæst í starfið. En Wendall Brown, stjórnarformaður Port Royal golfvallarins, segir að mennirnir hafi verið ráðnir tímabundið eftir að fjórir filippseyskir starfsmenn hættu störfum fyrirvararalaust.

Brown segir að mennirnir muni vinna á vellinum, að minnsta kosti fram yfir Grand Slam-mótið þar sem margir af bestu kylfingum heims leiða saman hesta sína. Mennirnir voru allir taldir tengjast hryðjuverkasamtökum en síðar kom í ljós að mennirnir voru með hreina samvisku.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.