ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.2° 11m/s SSW

Enginn þingmanna mætti á fundinn

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:35 › 6. ágúst 2009
Margrét Tryggvadóttir, einn fjögurra þingmanna Borgarahreyfingarinnar.

Margrét Tryggvadóttir, einn fjögurra þingmanna Borgarahreyfingarinnar. Mynd DV

Enginn fjögurra þingmanna Borgarahreyfingarinnar mætti á félagsfund hreyfingarinnar sem boðaður var með skömmum fyrirvara í Hafnarhúsinu í kvöld. Þetta kom fram í fréttum Sjónvarps klukkan 22. Um þrjátíu félagsmenn mættu á fundinn en yfirskrift fundarins var „Klofningur þinghóps Borgarahreyfingarinnar.“

Yfirskrift fundarins bar nafn með rentu enda hefur klofningur einkennt þinghópinn frá afgreiðslu ESB-málsins á Alþingi. Þar greiddi Þráinn Bertelsson atkvæði með aðildarumsókn að Evrópusambandinu en þau Margrét Tryggvadóttir, Birgitta Jónsdóttir og Þór Saari atkvæði gegn umsókn. Til stóð að taka fyrir skýrslu stjórnar Borgarahreyfingarinnar þar sem fjallað er um samskiptaörðugleika milli þinghópsins og stjórnar og klofning þinghópsins.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.