Vatnsstígur 4. Hópur hústökufólks kom sér fyrir í húsinu í vor og endaði það með því að lögreglan handtók 22 einstaklinga. Mynd Heiða Helgadóttir
„Ég var að koma af Vatnsstígnum og húsið er ónýtt,“ segir Ágúst Friðgeirsson, eigandi Vatnsstígs 4. Brennuvargar kveiktu í andyri hússins í dag en á föstudagskvöldið í síðustu viku kom einnig upp eldur í húsinu og urðu töluverðar skemmdir af völdum þess.
Ágúst keypti húsið árið 2004 og hefur það staðið autt síðan. Til stóð að reisa þar verslunarhúsnæði en ekkert hefur orðið úr þeim áætlunum. Í vor bjó hópur hústökufólks um sig í húsinu en lögregla kom fólkinu úr húsinu og handtók 22 hústökumenn.
Aðspurður hvað honum finnist um þau skemmdarverk sem unnin hafa verið á húsinu segir Ágúst: „Það er djöfullegt að þurfa að hafa svona yfir sér,“ segir hann.
Ágúst segir að nú sé verið að fara yfir það hvað verði gert við húsið en ekki fari á milli mála að það verði rifið. Efnahagsástandið á Íslandi hafi valdið því að ekki hefur verið ráðist í niðurrif á húsnæðinu og byggingu nýs húsnæðis.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna