ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW

Birgitta: Fólk vinni úr reiði sinni

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
19:01 › 6. ágúst 2009
Birgitta Jónsdóttir, þingflokksformaður Borgarahreyfingarinnar.

Birgitta Jónsdóttir, þingflokksformaður Borgarahreyfingarinnar. Mynd DV

„Ég rífst bara við Þráin þegar Icesave-málið er búið,“ sagði Birgitta Jónsdóttir, þingflokksformaður Borgarahreyfingarinnar, létt í bragði í samtali við DV. Þráinn Bertelsson, samflokksmaður Birgittu í þingflokki Borgarahreyfingarinnar kallaði eftir því í dag að hún, Margrét Tryggvadóttir og Þór Saari tækju pokann sinn og hleyptu varamönnum sínum að.

„Ég held að við eigum að taka þetta og ræða um þetta í haust og leyfa fólki að vinna úr reiði sinni. Mér finnst bara best, eins og ég hef áður sagt, að Þráinn ræði bara við okkur eins og við erum margoft búin að bjóða honum,“ segir Birgitta.

Allt fór í kaldakol í þingflokki Borgarahreyfingarinnar í kjölfar ESB-málsins. Birgitta, Margrét og Þór Saari greiddu atkvæði gegn aðildarumsókn að ESB en Þráinn greiddi hinsvegar atkvæði með tillögunni. Síðan þá hafa lítil samskipti verið milli Þráins og hinna þingmannanna þriggja. „Eftir þetta ESB-mál höfum við alltaf boðið honum á þingflokksfundi og reynt að hvetja hann til að koma og vinna með okkur. En hann hefur ekki viljað það,“ segir Birgitta.

Aðspurð hvort og þá hvernig þingflokkur Borgarahreyfingarinnar geti starfað við slíka sundrungur segir Birgitta: „Ég veit það ekki. Við verðum bara að einbeita okkur að þessu Icesave-máli og ég ætla ekki að eyða orku eða hafa áhyggjur af þessu. Mér finnst þetta vera stormur í vatnsglasi miðað við það hvað þetta er mikilvægt mál.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.