ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW

Átta látnir eftir eldsvoða í Belgíu

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:02 › 6. ágúst 2009
Átta manns létust í eldsvoðanum.

Átta manns létust í eldsvoðanum. Mynd AFP

Átta eru látnir eftir að eldur kom upp á öldrunarheimili í bænum Melle í norðurhluta Belgíu. Um 90 heimilismenn voru í húsinu þegar eldurinn kom upp í dag. Tveir slökkviliðsmenn voru fluttir til aðhlynningar vegna gruns um reykeitrun.

Grunur leikur á að eldurinn hafi kviknað út frá kæliviftu sem ofhitnaði. Melle er tíu þúsund manna bær skammt frá belgísku borginni Ghent.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.