ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.4° 10m/s WSW

50 þúsund bílar seldir ólölega úr landi

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:01 › 6. ágúst 2009
Talið er að allt að 50 þúsund bílar hafi verið seldir úr landi í Þýskalandi - bílar sem áttu að fara í brotajárn.

Talið er að allt að 50 þúsund bílar hafi verið seldir úr landi í Þýskalandi - bílar sem áttu að fara í brotajárn. Mynd Photos

Allt að 50 þúsund bílar, sem áttu að enda sem brotajárn, hafa verið seldir úr landi, flestir til Afríku eða austur Evrópu. Þetta upplýsti þýska lögreglan í dag. Talið er að lélegu eftirliti, skipulagðri glæpastarfsemi og lágu verði á brotajárni sé um að kenna.

Upp komst um málið þegar tollgæslan kíkti inn í stóran gám í Hamburg sem var á leið til Afríku. Í honum voru fjörutíu gamlir bílar sem síðar kom í ljós að hefðu átt að fara í brotajárn.

Þýskir bílaegendur, sem vilja losna við gömlu bílana sína fá 2.500 evrur, eða 500 þúsund krónur, fyrir að fara með gamla bílinn í brotajárn gegn því að kaupa nýja bifreið. Eigendur bifreiðanna höfðu fengið féð greitt en í stað þess að enda í brotajárni enduðu bílarnir í höndum glæpagengja.

Talið er að ekki sé um einagrað tilvik að ræða og allt að 50 þúsund slíkir bílar hafi verið seldir úr landi – ólöglega. Verð á brotajárni hefur fallið hratt eftir að efnahagsástandið fór að versna eftir mikla uppsveiflu til ársins 2007. Það hefur valdið því að fyrirtæki sem taka við bílum í brotajárn sitja á miklum birgðum.

Peer Steinbrueck, fjármálaráðherra Þýskalands, segir að rannsókn muni fara fram vegna málsins.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.