ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.9° 2m/s E

Bónusar settu Glitni á hausinn

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
18:32 › 5. ágúst 2009
„Bein afleiðing af svona bónusum er gjaldþrot bankans,“ segir Vilhjálmur.

„Bein afleiðing af svona bónusum er gjaldþrot bankans,“ segir Vilhjálmur. Mynd DV

Bjarni Ármannsson var rekinn úr stöðu bankastjóra skömmu eftir að nýir eigendur tóku yfir Glitni. Lárus Welding var ráðinn hans í stað og hóf nýja stórsókn sem fólst í því að stórauka útlán. Starfsmenn á lánasviði fengu bónusa fyrir útlán til fyrirtækja og gátu þar með hækkað laun sín til mikilla muna. Vilhjálmur Bjarnason, lektor við Háskóla Íslands, segir að bónusarnir hafi keyrt bankann í þrot.

„Er ekki bankinn kominn á hausinn? Og ég fæ ekki séð að menn hafi unnið fyrir kaupinu sínu þarna. Er þetta ekki bara augljóst mál? Þegar ég var bankaútibússtjóri fékk fólk enga bónusa. Bein afleiðing af svona bónusum er gjaldþrot bankans.“

Vilhjálmur veit ekki til að þess að fleiri bankar hafi verið með slík bónuskerfi. Hann segir banka hafa verið með svokölluð economic value added-kerfi (EVA) sem felst í því að starfsmenn fái borgað eftir arðsemi fyrirtækisins.

„Með slíku kerfi voru menn að reyna að verðleggja útlán og tekjur en það er ekki hægt að verðleggja og horfa í tekjur á útlánum sem eru veitt því þau taka mörg ár að koma inn. Það er ekki hægt að segja: „Vegna þess að ég veitti þessi útlán á ég rétt á einhverjum tekjum.“ Það er hægt að moka út útlánum og greiða út bónusa en svo koma útlánin aldrei inn. Svona bónuskjör eru bara til að auka á áhættusækni.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.