Philip og Nancy Garrido, sem sökuð eru um að hafa haldið Jaycee Lee Dugard fanginni í átján ár í bakgarði sínum, eru undir stöðugu eftirliti fangavarða og hafa verið sett í einangrun. Óttast er að aðrir fangar reyni að ráðast á þau eða að hjónin reyni sjálfsmorð.
Fangaverðir í Contra Costa-fangelsinu í Martinez í Kaliforníu, þar sem Philip er haldið, athuga klefa hans á fimmtán mínútna fresti til að tryggja að þessi fyrrum LSD-fíkill reyni ekki sjálfsmorð.
Hann fær skó með engum reimum, fær ekki að vera með belti og þarf að nota bréfþurrkur í staðinn fyrir handklæði. Philip þarf að borða máltíðir sínar með plasthnífapörum og er vaktaður af fangaverði svo hann verði sjálfum sér ekki að voða.
Philip er hleypt út í fangelsisgarðinn daglega í fylgd tveggja vopnaðra varða eftir að hinum föngunum hefur verið hleypt aftur inn.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung