ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Jaycee vann fyrir mannræningja sína

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
08:31 › 31. ágúst 2009
Jaycee Dugard áður en henni var rænt og hún gerð að kynlífsþræl Garrido.

Jaycee Dugard áður en henni var rænt og hún gerð að kynlífsþræl Garrido.

Jaycee Dugard, sem var rænt fyrir átján árum síðan þar til hún komst í leitirnar í síðustu viku, vann fyrir prentfyrirtæki sem mannræningi hennar Phillip Garrido rak á heimili sínu.

Jaycee hefur gengið undir nafninu Alissa og átt í tölvupóstsamskiptum við viðskiptavini sína. Einn þeirra hefur rætt við CNN-fréttastofuna. Fyrirtæki Garrido tók að sér grafíska hönnun, gerð nafnspjalda og auglýsinga.

Hinn dæmdi kynferðisbrotamaður Phillip Garrido (58) og eiginkona hans Nancy (55) hafa verið handtekin og eiga yfir höfði sér ákærur í 29 liðum. Garrido hélt Jaycee fanginni, ásamt tveim dætrum hennar sem hún eignaðist eftir nauðganir hans, í vinnuskúr í bakgarðinum á heimili sínu.

Samkvæmt viðskiptavininum sem CNN-fréttastofan ræddi við hafði Jaycee aðgang að tölvu og síma og því virðist sem hún hafi verið nánast „heilaþvegin“ þar sem hún reyndi ekki að kalla eftir hjálp í nokkur ár.

Hún birtist á lögreglustöð í vikunni þar sem hún staðhæfði að hún væri í raun Jaycee Dugard, stúlka sem rænt var fyrir 18 árum síðan þegar hún var aðeins 11 ára gömul.

Garrido er grunaður um fleiri glæpi á tímabilinu og er lögreglurannsókn á málum í tengslum við hann orðinn gríðarlega umfangsmikil.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.