ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW

Jaycee og börnin grétu þegar Garrido var tekinn

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
12:44 › 31. ágúst 2009
Jaycee Lee Dugard myndaði tengsl við mannræningja sinn og eignaðist tvö börn með honum.

Jaycee Lee Dugard myndaði tengsl við mannræningja sinn og eignaðist tvö börn með honum.

Jaycee Lee Dugard og börnin hennar tvö, sem hún eignaðist með mannræningja sínum Phillip Garrido, grétu þegar hann var handtekinn. Þetta segir stjúpfaðir Jaycee, Carl Probyn.

Jaycee sem var ellefu ára gömul þegar henni var rænt af Garrido og eiginkonu hans fyrir 18 árum síðan hefur nú þurft að útskýra fyrir 11 og 15 ára gömlum dætrum sínum að faðir þeirra hafi rænt henni árið 1991.

Probyn segir að það muni taka stúlkurnar mörg ár að jafna sig á breyttum aðstæðum. Hann sjálfur var grunaður um aðild að hvarfi Jaycee á sínum tíma.

Hann sagði að stjúpdóttir sín hefði að öllum líkindum orðið fyrir Stokkhólms-heilkenninu sem lýsir sér þannig að gíslar mynda tengsl við þá sem halda þeim föngum. Hann telur að hún hafi ekki reynt að flýja prísund sína vegna þessa þrátt fyrir möguleikana.

Hann sagði einnig að Jaycee Dugard hefi svoa lítið breyst síðan hún hvarf.

„Börnin héldu að hann væri faðir þeirra og þau vissu ekki að Jaycee hefði verið rænt. Hún sagði þeim það fyrir tveimur dögum,“ segir Probyn í samtali við Geraldo Rivera hjá Fox-fréttastöðinni. Hann sagðist ekki vita hvort stjúpdóttir sín væri ástfangin af Garrido en vissulega hefðu hún myndað tengsl við hann á þeim átján árum sem hann hélt henni fanginni. Eins og sagt var frá á DV.is í morgun starfaði Jaycee sem hálfgerður ritari í fyrirtæki Garrido, Print For Less, og gekkst undir nafninu Alissa.

Lögregluembætti í tveimur borgum Bandaríkjanna rannsaka nú hvort Garrido tengist hugsanlega fjölda óleystra morðmála frá tíunda áratugnum þar sem vændiskonur voru myrtar.

Garrido og eiginkona hans neita enn sök í málinu.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.