Í garðinum er hálfónýtt tjald með tveimur fullorðinsstólum og einum barnastól. Inni í tjaldinu eru fjölmargar bækur um ketti, kattaleikföng og kattapúsl.
Fyrstu myndir af bakgarðinum þar sem Jaycee Lee Dugard var haldið í átján ár eru vægast sagt óhugnalegar. Þær sýna handmálað skilti sem býður fólk velkomið inn í hryllilegan heim þar sem hálfónýtt tjald og skúr voru vistarverur. Lögreglan rannsakar nú sönnunargögn sem benda til þess að Jaycee hafi verið heilaþvegin af trúarofstækismanninum Philip Garrido.
Í garðinum er stálbúr sem virðist vera ónotað en sérfræðingar hafa bent á að dætur Jaycee hafi mátt leika í garðinum þar sem nágrannar sáu til.
Fyrstu orð Jaycee til móður sinnar þegar þær hittust á ný voru: „Hæ mamma, ég á börn.“ Stjúpfaðir Jaycee segir að Jaycee hafi myndað sterk tilfinningatengsl við Philip sem er næstum því eins og hjónaband.
Jaycee gengst nú undir læknis- og sálfræðiskoðun á leynilegum stað í Norður-Kaliforníu þar sem hún dvelur með móður sinni og hálfsystur. Heimildarmaður blaðsins The Daily Mail segir að Jaycee sé ótrúlega heilbrigð en ljóst sé að einhvers konar heilaþvottur hafi átt sér stað.
Fyrsta fórnarlamb Philips Garrdio, Katherine Callaway, segir hann vera skrímsli. Hann rændi henni, nauðgaði ítrekað og hélt henni sem kynlífsþræl árið 1976. Lögreglan heldur nú að ránið hafi verið æfing fyrir Jaycee.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 









Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu