ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW

Faðir Garrido: LSD drap heila hans

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:00 › 30. ágúst 2009
Philip Garrido hefur verið kallaður skrímsli.

Philip Garrido hefur verið kallaður skrímsli.

  • Philip hélt Jaycee fanginni í átján ár.

    Philip hélt Jaycee fanginni í átján ár.

Manuel Garrido, faðir Philips Garrido sem hélt Jaycee Lee Dugard fanginni í bakgarðinum sínum í átján ár, segir í einkaviðtali við The Daily Mail að ofskynjunarlyfið LSD hafi drepið heila sonar síns. Þá hafi hann byrjað að heyra raddir og trúað því að Guð væri að tala við sig. Manuel segir Philip hafa verið stilltan og prúðan dreng á uppvaxtarárunum.

Manuel segist vorkenna Jaycee en að ekki sé hægt að gera son sinn ábyrgan fyrir gjörðum sínum þar sem LSD sé búið að „drepa heila hans.“

„Hann lenti í mótorhjólaslysi og fékk höfuðáverka. Hann varð aldrei samur eftir það. Hann komst í vondan félagsskap með nokkrum Mexíkóum, byrjaði að taka LSD og það fór illa með hann. Hann varð geðveikur. Hann er ekki með réttu ráði. Litla skepnan veit ekki hvað hann gerir. Ég vorkenni litlu stelpunni sem hann rændi en Philip er ekki með réttu ráði,“ segir Manuel.

Manuel segir að hann hafi reynt að leita hjálpar fyrir son sinn en ekkert hafi virkað.

„Þegar hann var lítill strákur var hann yndislegasta barn sem þú getur ímyndað þér. Hann var gáfaður, skýr og kurteis. Þegar önnur börn létu öllum illum látum á veitingastöðum sat hann kurteis og hljóðlátur. Hann var aldrei með vandræði. Hann var klár og góður handverksmaður. Hann gat spilað á mörg hljóðfæri og elskaði gítarinn. Hann var góður strákur. Hann stofnaði hljómsveit og spilaði á böllum. Hann var hamingjusamur og vinsæll.

Síðan lenti hann í slysinu og ánetjaðist LSD og það brenglaði huga hans. Það var hræðilegt. Hann gerði skrýtna hluti eftir það. Hann heyrði raddir og heyrir þær enn. Við reyndum að hjálpa honum en hvað getur læknir gert? LSD var búið að drepa heilann hans. Hann sagði að Guð talaði við sig og annað í þeim dúr. Hann er geðveikur. Geðveikur.“

Manuel sá aldrei Jaycee eða dætur hennar tvær sem hún eignaðist með Philip. Manuel skilur ekki hvernig sonur sinn gat gert þetta.

„Ég bjóst aldrei við hann myndi gera þetta. Hann var aldrei ofbeldisfullur og ég var aldrei hræddur við hann. Hann er mjög blíður. Ég botna ekkert í þessum mannránum og nauðgunum. Hann var ekki með réttu ráði. Hann heyrði stundum raddir sem sögðu honum að hann gæti grætt milljón dollara og gert okkur öll rík. Hann talaði bara um vitleysu.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.