"Að þú skulir tjá þig um meðferð sem þú hefur ekkert kynnt þér segir mikið um þig og innræti þitt," segir í athugasemd merkt Jónínu Benediktsdóttur við grein á bloggsíðu Svans Sigurbjörnssonar læknis sem varar við detox-meðferðum Jónínu og kallar þær kukl.
"Ég er orðlaus yfir bullinu í þér Svanur en sem betur fer eru margir læknar að átta sig á þessari tveggja vikna heilsumeðferð sem gerir fólki gríðarlega gott. Þú er dóni," segir í athugasemdinni. Mikil viðbrögð hafa verið við grein Svans, sum jákvæð og önnur neikvæð.
Í maí síðast liðnum beindi Landlæknisembættið þeim tilmælum til lækna að neita beiðnum um blóðrannsóknir sem ekki eru gerðar á læknisfræðilegum forsendum. Á vefsíðu Landlæknisembættisins kemur fram að því hefðu borist ábendingar frá læknum þess efnis að á vefsetrinu www.detox.is, sem Jónína Benediktsdóttir rekur, væri farið fram á að þátttakendur í námskeiðum á þeirra vegum fari í blóðprufu áður en námskeið hefjast.
„Af því tilefni vill Landlæknisembættið minna lækna á að ekki skal vísa fólki í rannsóknir nema læknisfræðilegar ábendingar liggi fyrir. Það hefur aldrei verið mikilvægara en nú að standa vörð um fjárútlát í heilbrigðismálum og forgangsraða rétt. Því ber að neita staðfastlega beiðnum um blóðrannsóknir sem ekki eru gerðar á læknisfræðilegum forsendum,“ segir á vefsíðu Landlæknisembættisins.





Páll Óskar: „Ísland á að draga sig útúr Eurovision“
Kona réðst að öryggisverði í 10-11
Á ótryggðum bíl vegna gjaldþrots án þess að vita það
Vatnskóngurinn opnar tískuskóla
„Hún var góð manneskja og góð vinkona“