ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 5m/s SSW

Sofnaði í stolnum bíl

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:00 › 3. ágúst 2009

Þrítugur ástralskur karlmaður hefur verið handtekinn eftir að lögreglan fann hann sofandi í stolnum bíl á þvottastöð. Lögreglan segir að hann hafi keyrt bílnum inn í sjálfvirka bílaþvottastöð á mánudagsmorgun, því næst hafi hann sofnað.

Umsjónamaður stöðvarinnar kallaði á lögregluna klukkan þrjú þegar hann uppgötvaði að bíllinn hafði ekki færst í klukkutíma. Í skýrslu lögreglunnar segir að bíllinn hafi haft tvær númeraplötur og honum hafi verið stolið í júlí.

Lögreglan vakti manninn sem svaf værum blundi í bílnum og handtók hann fyrir bílaþjófnað. Hann hefur verið settur laus gegn tryggingu og á að mæta fyrir rétt í september.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.