Linda aftur farin í hundana
Linda P er alsæl þessa daganna með hundana sína Mynd/Rakel Ósk.
,,Ég ætlaði ekki að fá mér hund aftur eftir að ég missti Sunnu og Mána. En það leið ekki sá dagur að Ísabella spyrði mig ekki um Sunnu og Mána. Þá ákvað ég að hún mætti ekki fara á mis við það að eiga hund,“ segir Linda Pétursdóttir, stofnandi Baðhússins og fyrrverandi Miss World, sem er orðin hundaeigandi á ný eftir tveggja ára hlé.
Nú er það hvolpurinn Stjarna sem mæðgurnar hafa eignast. Linda átti hundana Mána og Sunnu sem voru af tengundinni enghlish springer. Hún missti Mána í ágúst 2007 og Sunna fór hálfu ári seinna. Hundarnir tveir höfðu fylgt henni lengi. Máni var 12 ára og Sunna 8 ára. Þegar Linda bjó í Bandaríkjunum og Kanada fylgdu hundarnir henni vestur um haf og heim aftur.
,,Það var mikil sorg eftir að Sunna og Máni fóru. Þau höfðu fylgt mér í gleði jafnt og sorg og voru sannir vinir. Ég er með hundaveikina, enda hef ég átt hunda síðan ég eignaðist Doppu 10 ára. Ég sá ekki fyrir mér í fyrstu að nýr hundur gæti komið í stað Sunnu og Mána. Ég valdi Stjörnu sem er enskur cocker því sú tegund er minni en springerinn. Stjarna hefur frá því hún kom til okkar, þá tveggja mánaða, heillað okkur mæðgurnar og Ísabella er alsæl með nýja fjölskyldumeðliminn. Það er auðvitað ekki þannig að Stjarna fylli það skarð sem varð við brotthvarf Sunnu og Mána. Minningarnar
um þau lifa en nú er hafinn nýr kafli með nýjum hundi,“ segir Linda sem hélt þeim sið að nefna hunda sína eftir himintunglum
Fimmtudagur 13. ágúst 2009 kl 23:44
„Syni mínum var rænt og þeir gerðu ekkert“
Fimmtudagur 13. ágúst 2009 kl 22:48
Endurholdgaður fílaguð
Fimmtudagur 13. ágúst 2009 kl 22:29
Stjórnendur 365 krafðir um mánaðarlaun
Fimmtudagur 13. ágúst 2009 kl 22:12
Meintur pervert neitar sök
Fimmtudagur 13. ágúst 2009 kl 21:00
Mislukkaður bankaræningi
Fimmtudagur 13. ágúst 2009 kl 20:20
Bróðir knattspyrnustjörnu fannst látinn á Krít
Fimmtudagur 13. ágúst 2009 kl 18:41
Svínaflensan lamar lið Grindavíkur
Fimmtudagur 13. ágúst 2009 kl 17:43
Búsáhöld barin við Austurvöll
Fimmtudagur 13. ágúst 2009 kl 16:31
Sjálfsmorðsárás banar 17
Fimmtudagur 13. ágúst 2009 kl 15:50
Elísa Auður fundin
Fimmtudagur 13. ágúst 2009 kl 15:39
Dæmdur hryðjuverkamaður nýtur samúðar
Fimmtudagur 13. ágúst 2009 kl 13:57
Stjórnin hækkar húsnæðislánin
Fimmtudagur 13. ágúst 2009 kl 13:39
Evran verður á 160 krónur árið 2012
Fimmtudagur 13. ágúst 2009 kl 12:28
Lasin króna heldur uppi verðbólgu og vöxtum
Fimmtudagur 13. ágúst 2009 kl 11:11
Lýst eftir Elísu Auði
Fimmtudagur 13. ágúst 2009 kl 10:23
Málningu skvett aftur á heimili Hreiðars Más - myndir
Fimmtudagur 13. ágúst 2009 kl 09:56
Ari Edwald spjallar við starfsfólkið
Fimmtudagur 13. ágúst 2009 kl 07:30
Kostirnir fleiri en gallarnir
Fimmtudagur 13. ágúst 2009 kl 06:45
„Þetta er hans mál“
Fimmtudagur 13. ágúst 2009 kl 06:03








