ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.9° 4m/s E

„Jóhanna passar ekki upp á fólkið sitt“

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
12:15 › 3. ágúst 2009
Jónas Kristjánsson fyrrverandi ritstjóri

Jónas Kristjánsson fyrrverandi ritstjóri

„Ríkisstjórnin er óhæf, getur ekki gætt hagsmuna alþýðunnar. Er svo upptekin af Evrópusambandinu, að hún getur ekki sagt sannleikann um erlenda dólga,“ segir Jónas Kristjánssonar bloggari og fyrrverandi ritstjóri á síðu sinni í dag. Hann segir Jóhönnu Sigurðardóttur ekki passa upp á fólkið sitt.

„Um Evrópusambandið, Alþjóða gjaldeyrissjóðinn, norræn ríki, stjórnir Bretlands og Hollands. Hún á að hrópa á helztu götuhornum heimsins. En Eva Joly hefur hlaupið í skarðið og er það vel. Ríkisstjórnin þarf á stuðningi almennings að halda, en rís aldrei upp til varnar honum. Heimtar bara, að menn leggist undir okið, gætir engra réttinda fólks. Ekki heldur gegn óðum ráðamönmnum nýja Kaupþings, sem er þó ríkisbanki.“

Jónas endar svo á þessum orðum: „Jóhanna passar ekki upp á fólkið sitt.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.