Guiness Rishi er haldinn heldur furðulegri þráhyggju. Honum langar að komast aftur í heimsmetabók Guiness svo hann ætlar að láta húðflúra á sig alla þjóðfána í heiminum. Hann breytti nafninu sínu meira að segja í Guiness til að auka líkurnar á að skrá nafn sitt á spjöld sögunnar.
Rishi, sem er 67 ára og er frá Indlandi, á nú þegar fjögur heimsmet. Meðal annars fyrir að byggja stærsta turn úr sykurmolum í heiminum og ættleiða elsta mann í heiminum. En Rishi hefur nú önnur markmið. Hann ætlar að húðflúra 220 mismunandi þjóðfána á líkama sinn. Hann áætlar að það taki hann þrjú ár að klára verkið og það muni kosta 12,500 pund, eða ríflega 2,6 milljónir króna.
Rishi hefur nú þegar látið húðflúra sex fána á andlitið á sér. Það eru meðal annars þjóðfánar, Indlands, Bretlands, Bandaríkjanna, Canada og Kýpur. Hann segir að miklvægustu fánarnir fari á andlitið á sér og áætlar að geta látið 60 fána á allan hausinn.
Eftir að hann verður búinn að þekja hausinn af húðflúrum ætlar hann að færa sig niður með hnakkanum og vinna sig svo niður eftir bakinu.
Eiginkona Rishi og börn hans eru ekki beint hrifinn af uppátæki hans, en hann telur það þess virði að húðflúra fánana á sig. Hann vill komast í heimsmetabókina.
"Fólk lítur á mig sem mjög skrítinn einstakling," segir Guiness Rishi.





Radcliffe fúll út í Óskarinn
Var fullur á meðan hann lék Harry Potter
Madonna mætti með hersveit
Heidi þakklát fyrir stuðninginn
Scarlett og nýi kærastinn