„Þær eru margar eftiminnilegar verslunarmannahelgarnar. Ég býst við að þjóðhátíðin í Eyjum
verði eitthvað sem erfitt verði að gleyma. Það var helgin þegar Stuðmenn spiluðu í fyrsta skipti
og sló öll þátttökumet þá. Ég veit ekki hvort það met standi,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður, aðspurður um eftirminnilegustu þjóðhátíðina sína.
„Það var helgin þegar Stuðmenn spiluðu í fyrsta skipti og sló öll þátttökumet þá. Ég veit ekki hvort það met standi. Við vinirnir keyptum far með Smyrli sem var leigður til að taka þátt í herlegheitunum. Hann kom held ég 7 tímum of seint þar sem aðsóknin var það mikil að skipulagið riðlaðist aðeins. Fólk
var orðið nokkuð órólegt í Þorlákshöfn og ég mun aldrei gleyma andlitunum á Færeyingunum
þegar nokkur hundruð ungmenni þustu í skipið. Sniglarnir voru á staðnum og björguðu því sem
bjargað varð. Í staðinn fyrir að koma seinnipartinn á föstudegi út í Eyjar komum við að morgni
laugardags.
Við vorum heppnir að finna sléttan, góðan grasflöt og tjölduðum þar. Seinna kom í
ljós að þetta var golfbraut! Í kjölfarið komu Sniglarnir og tjölduðu í kringum okkur.
Hátíðin var ekki laus við áföll. Það rigndi allan tímann. Hátalaraboxin hjá Stuðmönnum sprungu
vegna hita frá brennunni og lítið varð um spilamennsku hjá þeirri frábæru hljómsveit. Það
kom ekki að sök þar sem Seðlar frá Borgarnesi spiluðu alla nóttina á einhverju örsviði og allir
skemmtu sér hið besta.“




Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Á sínar villtu hliðar
Bauð engum stjörnum
Beckham með Harry prins á djamminu
Radcliffe fúll út í Óskarinn
Var fullur á meðan hann lék Harry Potter