Lögbannið sem Sýslumaður í Reykjavík samþykkti á fréttaflutning RÚV að beiðni stjórnenda Kaupþings og gamla Kaupþings er fráleitt og gengur gegn hagsmunum almennings, segir í yfirlýsingu frá Blaðamannafélagi Íslands og Félagi fréttamanna á Ríkisútvarpinu. Þeir mótmæla lögbanninu harðlega og segja það hafa þann tilgang einan að þagga niður fréttaflutning um hrunið.
Yfirlýsingin er svohljóðandi:
„Blaðamannafélag Íslands og Félag fréttamanna á Ríkisútvarpinu mótmæla lögbanni á fréttir Ríkisútvarpsins sem byggja á gögnum frá lánanefnd Kaupþings í aðdraganda efnahagshrunsins. Lögbannið er fráleitt, gengur gegn hagsmunum almennings og hefur þann eina tilgang að þagga niður fréttaflutning um hrunið, aðdraganda þess og eftir atvikum ábyrgðarmenn.
Félagið telur að ef lögbannið verður staðfest af dómstólum þurfi Alþingi að breyta lögum um bankaleynd tafarlaust til að tryggja eðlilega og lýðræðislega umræðu.“





Páll Óskar: „Ísland á að draga sig útúr Eurovision“
Kona réðst að öryggisverði í 10-11
Á ótryggðum bíl vegna gjaldþrots án þess að vita það
Vatnskóngurinn opnar tískuskóla
„Hún var góð manneskja og góð vinkona“