ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 5m/s SSW

Fínt ferðaveður í helgarlok

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
10:05 › 3. ágúst 2009

Landsmenn á faraldsfæti fá ágætis ferðaveður á heimleið eftir ævintýri verslunarmannahelgarinnar. Hægur vindur verður á mestöllu landinu. Búast má við dálítilli rigningu með köflum norðantil í dag en þar styttir upp í kvöld. Sunnantil verður léttskýjað að mestu.

Búast má við átta til átján stiga hita í dag, hlýjast verður sunnanlands. Á morgun hvessir aðeins og fer að auki að rigna suðaustantil.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.