ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.9° 4m/s E

Engeyjarættin: Stórlaxar í stjórnmálum

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
16:51 › 3. ágúst 2009
  • Bjarni Ben formaður Sjálfstæðisflokksins

    Bjarni Ben formaður Sjálfstæðisflokksins

Fjölskyldurnar sem hafa mest í tekjur á Íslandi eru stútfullar af bæði athafnamönnum og stjórnmálamönum. Ættartrén teygja sig út um víðan völl og sannast hið fornkveðna að eplið fellur sjaldan langt frá eikinni. Og í þessu tilviki virðast peningar vaxa á eikinni. Engeyjarættin er sannkallað stórveldi á Íslandi og í henni má finna marga valdamestu menn Íslands, jafnt í stjórnmálum sem og viðskiptalífinu.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, var atkvæðamikill í íslensku viðskiptalífi áður en hann tók við formennskunni. Hann sagði af sér stjórnarformennsku í olíufyrirtækinu N1 hf. og BNT hf. í desember í fyrra. Föðurbróðir Bjarna, Einar Sveinsson, tók við sem stjórnarformaður í félögunum og frændi þeirra, Benedikt Jóhannesson, framkvæmdastjóri Talnakönnunar, tók sæti í stjórnum N1 og BNT þegar Bjarni hætti. N1 varð til árið 2007 þegar Olíufélagið Esso, Bílanaust og fleiri fyrirtæki sameinuðust. Stærsti einstaki hluthafinn í BNT er fjárfestingafélagið Máttur sem á rúmlega 29 prósent í félaginu. Einar Sveinsson er einnig stjórnarformaður í Mætti.

Faðir Bjarna, Benedikt Sveinsson hæstaréttarlögmaður, hefur setið í stjórn ýmissa fyrirtækja og var meðal annars stjórnarformaður hjá Nesskipum sem og í Sjóvá, Marel, SR mjöli og Eimskip. Þá var Benedikt bæjarfulltrúi í Garðabæ 1968 til 1998, þar af oddviti meirihlutans og formaður bæjarráðs í tíu ár.

Sonur Einars, lögfræðingurinn Benedikt Einarsson, krækti sér í eina farsælustu poppsöngkonu sem Ísland hefur átt, sjálfa Birgittu Haukdal, og eignuðust þau nýverið saman dreng. Birgittu hefur ekki skort verkefni síðan hún sló í gegn með hljómsveitinni Írafár og hefur fengist við ýmis verkefni síðan, talað inn á teiknimyndir og keppt fyrir Íslands hönd í Eurovision svo dæmi séu tekin. Benedikt á svo sannarlega framtíðina fyrir sér í lögfræðibransanum og vinnur sem stendur á lögfræðistofunni BBA Legal.

Systkinin Björn og Valgerður Björnsbörn, börn Bjarna Benediktssonar fyrrverandi forsætisráðherra, eru líka af Engeyjarættinni og hafa þau bæði látið að sér kveða í pólitík.

Annar þekktur stjórnmálamaður í ættinni er Halldór Blöndal sem hefur meðal annars gegnt embætti landbúnaðar– og samgönguráðherra. Guðrún Pétursdóttir, dósent í hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands og framkvæmdastjóri stofnunar Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun, er í þessari margfrægu ætt. Hún er hvað þekktust fyrir að bjóða sig fram til forsetaembættisins árið 1996 en hætti í framboði fyrir kosningar. Maður hennar, Ólafur Hannibalsson, er bróðir Jóns Baldvins, fyrrverandi utanríkisráðherra og sendiherra.

Í helgarblaði DV er fjallað um ríkustu fjölskyldur Íslands


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.