Raggi Bjarna hefur um áratugabil verið okkar ástsælasti dægurlagasöngvari. Hann hóf ferilinn sem trommuleikari en sneri sér að söngnum eftir hið örlagaríka kvöld á KEA. Faðir hans var Bjarni Einar Böðvarsson, þekktur harmónikku- og kontrabassaleikari og útvarpsmaður, og móðir hans, söngkonan Lára Ingibjörg Magnúsdóttir svo Raggi á ekki langt að sækja tónlistarhæfileikana.
Raggi spilaði meðal annars með hljómsveit Svavars Gests, KK Sextettinum, Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar og Milljónamæringunum að ógleymdri Sumargleðinni sem túraði um landið í um 15 ár. Hann segir aldrei neitt annað en tónlist hafa komið til greina sem hans lífsviðurværi og að foreldrar hans hafi ýtt undir þennan áhuga.
Aðspurður hvenær hann hafi síðast slegið á trommurnar segir hann nokkur ár síðan. „Síðast þegar ég spilaði á trommur var með Stórsveit Reykjavíkur fyrir nokkrum árum. Trommarinn var veikur og ég spilaði fyrir hann hluta af æfingunni og var þvílíkt lurkum laminn að ég gat ekki hreyft mig daginn eftir,“ segir hann og hlær.
Raggi Bjarna er í viðtali í helgarblaði DV





Radcliffe fúll út í Óskarinn
Var fullur á meðan hann lék Harry Potter
Madonna mætti með hersveit
Heidi þakklát fyrir stuðninginn
Scarlett og nýi kærastinn