ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 5.1° 8m/s S

Öryggisvörður bjargaði Jaycee

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
09:12 › 29. ágúst 2009
Jaycee Lee Dugard getur þakkað öryggisverði í UCLA-skólanum að hún er laus úr prísundinni.

Jaycee Lee Dugard getur þakkað öryggisverði í UCLA-skólanum að hún er laus úr prísundinni.

Upp komst um mannræningjann Philip Garrido og eiginkonu hans Nancy, sem höfðu haldið Jaycee Lee Dugard í gíslingu og notað hana sem kynlífsþræl í 18 ár, eftir að öryggisvörður UCLA-háskólans í Bandaríkjunum skoðaði skilríki Garrido. Öryggisvörðurinn kom auga á Garrido, Jaycee og tvær stúlkur sem hún hafði eignast á meðan hún var í gíslingunni. Stúlkurnar höguðu sér mjög undarlega og á meðan öryggisvörðurinn ræddi við Garrido, gat hann ekki náð augnsambandi við stúlkurnar.

Í ljós kom svo að Garrido var á lífstíðar skilorði og með mjög takmarkaðann umgengnisrétt um börn. Að sögn öryggisvarðarins virtust börn Jaycee líta út fyrir að vera í fyrsta skipti utan garðsins sem þeim var haldið í alla ævi sína.

Lögreglan leitar nú á heimili Garrido-hjónanna að sönnungargögnum sem tengja þau við fjölmörg morð á vændiskonum á svæðinu á 10. Áratugnum. Mörg lík af vændiskonum hafa fundist á iðnaðarsvæði, skammt frá þeim stað sem hann nam Jaycee á brott árið 1991. Alls er talið að um 10 vændiskonur hafi veirð myrtar og skildar eftir á svæðinu.

Hjónin neituðu sök þegar þau komu fyrir dómara í gær. Þau eru ákærð í 29 ákæruliðum, meðal annars fyrir að halda henní gíslingu, mannrán og nauðganir.
Lögregluyfirvöld í Kaliforníu báðust í gær afsökunar á málinu öllu. Árið 2006 hringdi nágrani í neyðarlínuna og sagði konu og börn haldið í gíslingu í garðinum við mjög slæmar aðstæður. Skilorðsfulltrúi Garrido kom á svæðið, en varð ekki var við neitt. Sá sem hringdi í neyðarlínuna sagði Garrido vera geðveikan kynlífsfíkil. Bróðir hans hefur sagt við fjölmiðla að Garrido sé mjög veikur á geði, en eiginkonan sé eins og vélmenni sem geri það sem henni sé sagt.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.