Skrímslið Phillip Garrido, sem rændi hinni 11 ára gömlu Jaycee Lee Dugard árið 1991 og hélt henni í kynlífsánauð þar til fyrir helgi, var dæmdur í 50 ára fangelsi árið 1977 fyrir nauðgun og mannrán. Hryllingssaga hins 58 ára gamla Garrido er smátt og smátt að koma fram í dagsljósið. Garrido var á þeim tíma á kafi í eiturlyfjum og notaði meðal annars LSD og kókaín. Árið 1977 rændi hann konu af bílastæði í South Lake Tahoe í Reno, handjárnaði hana og nauðgaði henni í geymslu sem hann hafði sérstaklega útbúið fyrir glæpinn. Áður hafði hann tekið inn fjóra skammta af LSD, að því er Fox fréttastofan greinir frá.
Árið 1988 var Garrido einhverra hluta vegna sleppt úr fangelsi, en hafður á lífstíðar skilorði. Skilorðsfulltrúi heimsótti Garrido af og til en varð aldrei var við að hann hélt stúlkunni og tveimur dætrum hennar í fangelsi í bakgarðinum hjá sér.
Fyrrverandi lögreglumaður í Reno, sem rannsakaði nauðgunina árið 1977 segir að Garrido hafi viljað beita konur valdi. Í réttarhöldunum viðurkenndi hann einnig að hafa stundað kynlífsathafnir á almannafæri. Lögreglumaðurinn sem heitir Dan DeMaranville, sagði í samtali við fjölmiðla að Garrido hafi virst vera gáfaður og menntaður maður sem kom vel fyrir þrátt fyrir langvarandi fíkniefnanotkun. Hins vegar hafi verið ljóst að hann væri ekki andlega heill.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung