Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Tveir voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu í gær. Um miðjan dag var tvítugur piltur stöðvaður fyrir þessar sakir á Sæbraut og í gærkvöld var tæplega þrítugur karl tekinn í Hafnarfirði af sömu ástæðu.
Þá voru tveir piltar, nítján og sautján ára, handteknir fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Sá eldri var stöðvaður í miðborginni og sá yngri á Miklubraut en með honum í bílnum voru þrír jafnaldrar hans. Einn þeirra reyndist vera með fíkniefni í fórum sínum og var hann líka handtekinn og færður á lögreglustöð.





Páll Óskar: „Ísland á að draga sig útúr Eurovision“
Kona réðst að öryggisverði í 10-11
Á ótryggðum bíl vegna gjaldþrots án þess að vita það
Vatnskóngurinn opnar tískuskóla
„Hún var góð manneskja og góð vinkona“